19.7.06

...
But if you are feeling sinister
Go off and see a minister
He'll try in vain to take away the pain of being a hopeless unbeliever
...

Mikið hlakka ég til Belle and Sebastian tónleikanna.

Mamma fann ökumatsbókina mína. Óþægileg áminning þess að ég er ekki enn komin með bílpróf. Ég er klárlega ekki góður og gildur samfélagsþegn nema að ég sé með bílpróf og þarf að gera eitthvað í mínum málum. Haha, í bókinni segir að æfingarleyfið mitt renni út í nóvember 2004, kemur Kristín! Ohh... Ég er skíthrædd við bíla og í bílum. Ég hef ekki minnstu löngun til að keyra sjálf. Ég er jafnhrædd við að keyra og ég er við að fara á línuskauta og skíði. Ég er næstum því jafnhrædd við að keyra og ég er við að hani ráðist á mig og við að snerta í mér augun. Nú getur hver sem er skilið á hve háu stigi hræðslan mín er, þetta er óskeikull mælikvarði.

Í gær fórum við Arnar og Egill í mission, ég var í rauðum kjól, Arnar með myndavélina og Agli með spjald sem var þakið álpappír. Við settumst inn í bíl og áfangastaðirnir urðu m.a. bryggjan, Eyrarvík og eitthvað hálfgert eyðibýli, það eina sem ég veit um það er að Kjartan Ólafsson er grafinn við bæinn. (Arnar vill þó meina að Kjartan þessi sé ekkert grafinn þarna, heldur sé þetta færanlegur legsteinn. Já Arnar, það er líklegasti kosturinn í stöðunni). Allavega, Egill sýndi snilldartakta sem aðstoðarmaður þegar hann bauðst til að sitja á kjólnum mínum sem fauk alltaf upp, ég sýndi snilldartakta með því að ná að loka augunum í helming skiptanna sem smellt var af og Arnar sýndi bara snilldartakta.



Suður í fyrramálið. Þar ætla ég m.a. á fund í Menntamálaráðuneytinu með HÍF hópnum, að kaupa efni í upphlut, versla einhver föt sem ekki eru þjóðbúningar og blanda kokteila með Nínu. Vei!

7 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

oh, mig langar í skemmtilega helgi.
mikið sem þú ert sæt á þessari mynd.

7:12 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

já þetta er aldeilis sæt mynd af þér

5:30 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Mér finnst þetta vera mjög flottar myndir af þér á síðunni hjá Arnari (hrós til þín og Arnars (þori ekki að kommenta hjá honum)).

11:06 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Júhúhú! hver er sætabrauð? (jussutaktar)


svar: Kristín... augljóslega

11:33 f.h.  
Blogger Nína said...

Má ég þá ekki nudda á þér augun með hana? Djöfulsins framtíðarplönin komin í hakk, takk. Bless, takk og ekkert snakk eins og stóð í Bert bókunum. Awesome. Áhrifaríkt.

3:14 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Best regards from NY! pay per click sites natural source vitamin High water alarms on aerobic septic systems can diabetes cause hair loss lesbians master ambien com lowest price anbien vitamin and minerals in seseme seeds

10:41 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

I have been looking for sites like this for a long time. Thank you! » »

5:29 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home